Jæja kanski það sé kominn tími á eina færslu, ég er bara búin að
vera svo upptekin af skemmtana lífinu að ég hef hreinlega ekki haft
tíma til neins annars 
Ég vil byrja á því að óska öllum gleðilegs ný árs og þakka fyrir
það gamla 
Þetta voru skemmtilegustu áramót lífs míns, byrjaði með að við
jasmin vorum í mat hjá Rebekku og fengum hamborgarahrygg sem var
geggjað góður ummm, svo fírum við í partý til tímons sem var
geggjað, og ég vil óska helgu og tímoni innilega til hamingju með
að vera byrjuð aftur saman en þau byrjuðu saman akkurat á slaginu
12 á miðnætti, gæti það verið rómantískara
Svo fórum við á
Broadway og þar hitti ég held ég nánast alla sem ég þekki hehe
allavega hitti ég mjög marga og það var mjög gaman.
Ég fór líka á djammið núna um helgina og var auðvitað byrjað hjá
tímza og þar hitti ég klöru í fyrista skipti sem er systir hans
tímons, æðilseg stelpa
og þar voru líka jasmin, leifur, habba,
vigga, helga og dísa( vinkona klöru) og svo fórum við á broadway
þar sem mr. and ms. handsome voru að spila , það var svonna ágætt
nema það lokaði svo snemma þannig að við fórum þá á pravda og vorum
þar til lokunnar og þetta var líka geggjað djamm, það er alltaf
gaman að djamma með skemmtilegu fólki sem auðvitað þau eru öll ég
dýrka ykkur öll
Svo hitti ég Írisi systir hennar sunnu inná
broadway og spjallaði aðeins við hana bjóst reyndar ekki við að hún
þekkti mig en hún gerði það svo sannarlega hehe svo sá ég hana líka
aftur á pravda, það er greinilegt að hún er svonna tranz díva eins
og ég hehe 
Svo er ég bara búin að vera að vinna , er byrjuð að vinna á
grund er reyndar bara að vinna þar í 7 daga og svo fæ ég 7 daga frí
þannig að ég fékk mér aukavinnu í lindasól sem er bara mjög fínt er
að vinna þar alla þessa viku
En ég er svo geggt ánægð að helga og tímon séu byrjuð aftur
saman þau er svo rosalega sæt saman og helga er svo æðisleg
manneskja og loksins getum við farið að hanga öll 4 saman
aftur
við helga erum meira að segja búnar að ákveða að halda öll
matarboð saman 
En nóg í bili hérna koma nokkarar myndir af djamminu á
laugardaginn 

ég , vigga og habba í gúddí fíling 

ég og jasmin

hegla og tímon svooooo sæt saman 

ég , jasmin , tímon og helga að leika súperman hehe

og svo eins sæt af okkur jasmin saman 